Ísklifur 1 – Grunnnámskeið í ísklifri
Það skal viðurkennast að hugmyndin um að klífa upp úr þverhnýptum jökulsprungum eða að hanga utan á svellþykku grílukerti hátt í norðurhlíðum fjalla er mögnuð þótt e.t.v. geti verið erfitt að sannfæra óinnvígða.
Ætla mætti að ísklifur henti best fólki með vott af sjálfseyðingarhvöt því vissulega fylgja þessu undarlega áhugamáli oftast kuldi, bleyta, ótti við að detta og óstöðvandi heimþrá.
En jafn furðulegt og það hljómar þá er þetta áhugamál jafn spennandi og það er krefjandi.
Á grunnnámskeiði í ísklifri er öryggið í öndvegi.
Um leið og þú lærir grunnatriði þessa tæknilega sports lærir þú setja upp megintryggingu svo þú getir af öryggi tekið næstu skref sjálfur og tryggt með ofanvað (e. top-rope) að námskeiði loknu.
Forkröfur:
Engar sérstakar forkröfur um reynslu eru á ísklifur 1. Námskeiðið er einfaldlega sniðið að ólíkum þörfum þátttakenda.
Þrátt fyrir það er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi reynslu af útivist og eigi hlýjan og skjólgóðan útivistarfatnað.
Verð:
- 34.900 kr. m/vsk – Fullt verð
- 29.900 kr. m/vsk – Fyrir fyrrverandi og núverandi þátttakendur Fjallaskólans
Hlutfall þátttakenda á leiðbeinenda er :1/4
Athugið að lágmarksfjöldi til að námskeiðið sé haldið er tveir þátttakendur
Skráning:
- Grunnnámskeið laugardaginn 19. nóvember – Skráning hér.
- Grunnnámskeið laugardaginn 27. nóvember- Skráning hér.
Stefnt er að því að bjóða upp á framhaldsnámskeið (Ísklifur 2) í upphafi árs 2017
Innifalið:
- Kvöld (2 klst.) fimmtudaginn 17.11 kl. 20. Staðsettning send á skráða þátttakendur!
- Dagur á jökli laugardagurinn 19. nóv
- Jöklaleiðsögumaður AIMG HIG 3 og þrautreyndur ísklifrari
- Klifubúnaður s.s.
Það sem þú þarft að koma með … en getur líka leigt:
- Fjallamennskuskór með stífum eða hálfstífum sóla (hægt að leigja 3.000 kr)
- Hlýjan og skjólgóðan útivistarfatnað þ.m.t. húfu og hanska/vettlinga
- Nesti til dagsins (borðað úti!)
- Bakpoki fyrir persónulegan útbúnað sem þér verður skaffaður, auka föt og nesti
Hvar:
- Námskeiðin eru haldin á Sólheimajökli
Á meðal efnis:
- helstu hnútar og brögð!
- Uppsetning megintrygginga
- að síga með öryggisprússik (abseil with a prussik)
- að tryggja félaga sinn (belaying)
- ísklifurtækni – tækniæfingar
Klifur er áhættusöm iðja og jafnvel þótt megináhersla verði lögð á öryggisþáttinn dekkar venjulega heimilistrygging ekki klifur eða fjallaklifur.
Þátttakendur eru því hvattir til að huga að tryggingum sínum áður en þeir taka þátt.