Næstu námskeið Fjallaskólans vorið 2017:
- 24. apríl – 27. apríl – 4 sæti laus
- 1. – 4. maí – 4 sæti laus
Fagnámskeiðið Jöklaleiðsögn 1 er grunnnámskeið fyrir þá sem hyggjast starfa við leiðsögn á íslenskum skriðjöklum.
Námskeiðið byggir á stöðlum Félags Fjallaleiðsögumanna (FF) á Íslandi (Asccociation of Icelandic Mountainguides – AIMG).
Í stuttu máli:
- Fjórir dagar / 40 tímar
- Kennsla fer fram innanhús og á jökli
- Nauðsynlegt grunnnámskeið fyrir þá sem stefna á leiðsögn á harðís skriðjökla (þ.e. neðan snælínu)
- Hlutfall þátttakanda á leiðbeinanda er 6:1
- Hámarksfjöldi 12, lágmarksfjöldi 4
- Gisting á Svínafelli 3.900 kr. – 4.300kr. – 4.900 kr. nóttin.
Réttindi
Skv. viðmiðunarreglum gæðakerfis ferðaþjónustunnar (VAKINN) og kröfum Félags fjallaleiðsögumanna öðlast þeir sem standast námskeiðið rétt til að starfa á jökli undir beinni og óbeinni leiðsögn jöklaleiðsögumanns / Fjallaleiðsögumans.
Ekki er óeðlilegt að þeim nemendum, sem hafa góðan grunn í fjallamennsku, sýna gott vald á þeim aðferðum sem kynntar eru á námskeiðinu, framúrskarandi hæfileika eða hraðar framfarir, sé ráðlagt að taka sveinspróf Jöklaleiðsögn 2 fljótlega, t.d. eftir aðeins sumarlangt starf á jökli.
Verð: 99.000 kr.
Greiðsla með millifærslu: Lágfóta ehf. kt. 461014-1000 R.nr. 0133-26-10253
Greiðsla um greiðslugátt Kortaþjónustunnar
Skráning:
Að greiðslu lokinni þarf að fylla út meðfylgjandi skráningarform.
Skráning telst aðeins gild að greitt hafi verið fyrir námskeiðið a.m.k. einum mánuði fyrir upphaf þess.
Innifalið: Kennsla, sérhæfður og persónulegur útbúnaður eftir atvikum.
Ekki innifalið: Akstur, gisting og uppihald meðan á námskeiðinu stendur.
Forkröfur: (sjá neðar í kröfum Félags Fjallaleiðsögumanna)
Spurningar:
Ef spurningar vakna hafið samband við Jón Gauta @ jongauti@fjallaskolinn.is
Yfirleiðbeinandi á fagnámskeiðum Fjallaskólans er Jón Gauti Jónsson Fjallaleiðsögumaður AIMG
Hér fyrir neðan er lýsing á námskeiðinu eins og fram kemur á vef Félags Fjallaleiðsögumanna (www.aimg.is)
Grunnnámskeiðið í jöklaleiðsögn tekur fjóra daga og fer fram á skriðjökli. Þetta námskeið er ætlað nýliðum í jöklaleiðsögn. Farið er yfir helstu atriðið í jöklaleiðsögn, s.s. veður, leiðarval, ísklifur, kennslu, sprungubjörgun, fjallavit, skráning í log-bækur, samskipti við gesti og hópstjórnun. Björgunaræfing er einnig hluti af námskeiðinu.
Forkröfur
- Gerð er krafa um grunnþekkingu á fjallamennsku og línuvinnu. Þessi grunnþekking getur verið í formi menntunar frá leiðsöguskólum, nýliðaþjálfunar björgunarsveita, Björgunarskóla Slysavarnafélags Landsbjargar eða viðurkenndra einkaaðila* í fjallamennsku og ferðamennsku á jöklum.
- Nemendur verða að hafa gilt skyndihjálparskírteini t.d fyrsta hjálp 1 og 2 eða sambærilegt (40 klst).
*Fyrirtæki sem yfir hafa að ráða Fjallaleiðsögumanni og Jöklaleiðsögumanni.
Mat
Geta nemenda í helstu áhersluatriðum skv. námsskrá félagsins er metin meðan á námskeiðinu stendur.
Á síðasta degi fer fram mat þar sem nemendur þurfa að leysa björgunarverkefni.
Á meðal þess sem farið verður í:
- Samskipti við viðskiptavini
- Leiðarval og áhættugreining leiða
- Sprungubjörgun og ísklifur
- Samskipti og hópstjórn við erfiðar aðstæður
- Jöklafærni og þekking
- Tryggingar í ís
- Meðferð línu
- Þrek og þol
- Viðbrögð við álagi
- Veður – áhrif landslags á veður
- Leiðbeiningar til viðskiptavina
Réttindi:
Námskeiðið veitir rétt til að starfa á jökli undir beinni og óbeinni leiðsögn.
* Fyrstu 10 dagar í vinnu hvers starfsmanns eiga að vera undir beinni leiðsögn sem aðstoðarleiðsögumaður.
*Bein leiðsögn – annar reyndari leiðsögumaður í sömu ferð. Óbein leiðsögn – annar reyndari leiðsögumaður frá sama fyrirtæki á sama svæði/jökli.
Um kennsluna:
- Námskeiðið fer fram á skriðjökli. Miða skal við að hlutfall nemenda og leiðbeinanda sé 6:1.
- Æskilegt er tveir leiðbeinendur séu við kennslu og skiptast á að vera með hópana.
- Hvert námskeið er leitt af Fjallaleiðsögumanni sem einnig er reyndur Jöklaleiðsögumaður en aðrir leiðbeinendur eru að lágmarki reyndir Jöklaleiðsögumenn.
- Hvert fyrirtæki fyrir sig getur haldið Jöklaleiðsögn 1 uppfylli leiðbeinendur á því þær kröfur sem gerðar eru til þeirra um menntun og reynslu.
- Námskeiðið byggir á kröfum Félags Fjallaleiðsögumanna á Íslandi – AIMG og geta nemendur í kjölfarið sótt um aðild að félaginu.