Næstu námskeið:
- Jöklaleiðsögn 1 19. – 22. mars – Staðfest – Skráning hér
- Jöklaleiðsögn 2. 23. – 26. apríl – Staðfest – Skráning hér
- Jöklaleiðsögn 1 1. – 4. maí – Staðfest – Skráning hér
Fagnámskeiðið Jöklaleiðsögn 1 er grunnnámskeið fyrir þá sem hyggjast starfa við leiðsögn á íslenskum skriðjöklum.
Jöklaleiðsögn 2 er eins konar sveinspróf í jöklaleiðsögn meira próf minna námskeið!
Efni námskeiðanna byggir á stöðlum Félags Fjallaleiðsögumanna (FF) á Íslandi (Asccociation of Icelandic Mountainguides – AIMG).
Ath. að skráning og greiðsla fyrir Jöklaleiðsögn 2 fer fram á vef félags Fjallaleiðsögumanna (http://www.aimg.is)
Í stuttu máli:
- Námskeiðin eru fjórir dagar / 40 tímar
- Kennsla fer fram innanhús og á jökli
- Nauðsynleg námskeið fyrir þá sem stefna á leiðsögn á harðís skriðjökla (neðan snælínu)
- Hlutfall þátttakanda á leiðsögumann á Jökla 1 er 6:1 en á Jökla 2 4:1
- Hámarksfjöldi á jökla 1 er 12 þátttakendur en en á Jökla 2 eru að hámarki 8 þáttt. Lágmarksfjöldi er 4
Kennsla og mat
Námskeiðin eru byggð upp með kennslu og símati á frammistöðu þátttakenda. Lagt er mat á færni þátttakenda í samskiptum við gesti, leiðarval, miðlun efnis, þekkingu á jöklum og umhverfi þeirra, færni í sprungubjörgun og línuvinnu. Einnig er þekking og færni í stærri björgunaraðgerðum metin. Á námskeiðinu Jöklaleiðsögn 1 er kennsla mun stærri þáttur en á Jöklaleiðsögn 2 þar sem meiri áhersla er lögð á að meta þekkingu og reynslu þátttakenda.
Ef nemendur á Jöklaleioðsögn 1 sýna framúrskarandi hæfileika og hraðar framfarir í því efni sem fyrir er lagt eru þeir hvattir til að sækja taka sveinsprófið, Jöklaleiðsögn 2, fljótlega, t.d. eftir aðeins sumarlangt starf á jökli.
Réttindi
Jökla 1: Þeir sem standast kröfur Jökla 1 námskeiðsins öðlast rétt til að starfa á jökli undir beinni og óbeinni leiðsögn jöklaleiðsögumanns / Fjallaleiðsögumans.
Jökla 2: Standist þátttakendur færnimati Jökla 2 öðlast þeir réttindi til þess að starfa undir merkjum AIMG á skriðjöklum landsins sem Aðstoðarjöklaleiðsögumaður undir óbeinni leiðsögn Jöklaleiðsögumanns AIMG.
Verð og skráning:
Jöklaleiðsögn 1 – 99.000 kr.* – Smelltu hér til að greiða með korti og hér til að skrá þig
Jöklaleiðsögn 2 – 120.000 kr.* – Skráning og greiðsla hér á vef AIMG
Greiðsla fyrir Jöklaleiðsögn 1 með millifærslu (kt. 461014-10009 R.nr. 0133 – 26 – 10253)
* Ath. að verkalýðsfélög niðurgreiða sum allt að 90% af námskeiðsgjaldinu
Innifalið: Kennsla, sérhæfður og persónulegur útbúnaður eftir atvikum.
Ekki innifalið: Akstur, gisting og uppihald meðan á námskeiðinu stendur.
Forkröfur: (sjá neðar í kröfum Félags Fjallaleiðsögumanna)
Hvenær?:
Námskeið eru haldin eftir samkomulagi árið um kring. Ef áðurnefndar dagsetningar henta ekki er velkomið að hafa samband við Jón Gauta s. 7877090 eða sendi línu á jongauti@fjallaskolinn.is
Yfirleiðbeinandi á fagnámskeiðum Fjallaskólans er Jón Gauti Jónsson Fjallaleiðsögumaður AIMG
Lýsing á námskeiðinu Jöklaleiðsögn 1 eins og fram kemur á vef Félags Fjallaleiðsögumanna (www.aimg.is)
Grunnnámskeiðið í jöklaleiðsögn tekur fjóra daga og fer fram á skriðjökli. Þetta námskeið er ætlað nýliðum í jöklaleiðsögn. Farið er yfir helstu atriðið í jöklaleiðsögn, s.s. veður, leiðarval, ísklifur, kennslu, sprungubjörgun, fjallavit, skráning í log-bækur, samskipti við gesti og hópstjórnun. Björgunaræfing er einnig hluti af námskeiðinu.
Forkröfur
- Gerð er krafa um grunnþekkingu á fjallamennsku og línuvinnu. Þessi grunnþekking getur verið í formi menntunar frá leiðsöguskólum, nýliðaþjálfunar björgunarsveita, Björgunarskóla Slysavarnafélags Landsbjargar eða viðurkenndra einkaaðila* í fjallamennsku og ferðamennsku á jöklum.
- Nemendur verða að hafa gilt skyndihjálparskírteini t.d fyrsta hjálp 1 og 2 eða sambærilegt (40 klst).
*Fyrirtæki sem yfir hafa að ráða Fjallaleiðsögumanni og Jöklaleiðsögumanni.
Mat
Geta nemenda í helstu áhersluatriðum skv. námsskrá félagsins er metin meðan á námskeiðinu stendur.
Á síðasta degi fer fram mat þar sem nemendur þurfa að leysa björgunarverkefni.
Á meðal þess sem farið verður í:
- Samskipti við viðskiptavini
- Leiðarval og áhættugreining leiða
- Sprungubjörgun og ísklifur
- Samskipti og hópstjórn við erfiðar aðstæður
- Jöklafærni og þekking
- Tryggingar í ís
- Meðferð línu
- Þrek og þol
- Viðbrögð við álagi
- Veður – áhrif landslags á veður
- Leiðbeiningar til viðskiptavina